Vaktaplan varar þig við áður en vakt brýtur 11 tíma hvíld eða reglur um vinnutíma ungmenna. Starfsfólk staðfestir tímana sína í símanum og þú sækir skrá með tímunum fyrir launakerfið.
Engin þörf á greiðsluupplýsingum
Ótakmarkaður fjöldi starfsmanna á 14.990 kr. á mánuði. Ekkert app að sækja.

Stjórnandi í litlu fyrirtæki ver að jafnaði 5 klukkustundum á mánuði í vaktaplön. Svo tekur uppgjörið annan eins tíma því tímaskráningin stemmir aldrei.
„Hey, það vantar 4 tíma á seðilinn minn!“
Starfsfólk staðfestir hverja vakt í símanum fyrir lok launatímabils og fær áminningu ef eitthvað vantar. Þú gerir upp tíma sem allir hafa þegar samþykkt.
Skoða Tímaskráningarkerfið„Er ég örugglega með 11 tíma hvíld?“
Þú færð viðvörun áður en vaktin er birt ef hún brýtur 11 tíma hvíld, vikulega hvíld, hámarksvinnutíma eða reglur um ungmenni. Ef hvíldin styttist reiknar kerfið frítökuréttinn.
Lesa um 11 tíma hvíldarregluna„Af hverju hækkar reikningurinn í hvert sinn sem við ráðum?“
Keðjan kostar 14.990 kr. á mánuði án VSK, óháð fjölda starfsmanna. Þú borgar ekki aftur fyrir launakerfi sem þú átt nú þegar.
Skoða verðskrá„Ég nenni ekki að sækja fleiri öpp eða setja upp flókin kerfi.“
Engin öpp til að sækja. Engin uppsetning. Virkar strax í vafranum í símanum og tölvunni. Byrjaðu á 2 mínútum.
Byrjaðu 30 daga prufu. Engin skuldbinding.
Vaktaplan varð til vegna þess að við sáum skýra vöntun á íslenskum markaði. Lítil og meðalstór fyrirtæki sátu eftir með úrelt verkfæri – flókin Excel skjöl og óskipulögð samskipti á samfélagsmiðlum.
Við vildum skapa lausn sem skilar raunverulegu virði til beggja aðila: Stjórnendur fá öflugt tól til að tryggja rétt uppgjör og spara tíma, á meðan starfsfólk fær nútímalegt viðmót sem eykur gagnsæi og starfsánægju.
Markmiðið er einfalt: Að gera vaktavinnu betri fyrir alla.
Hvers vegna að skipta yfir í sérhæft kerfi?
Samstarfsaðili
ExOS er íslenskur gervigreindarvettvangur sem les rekstrargögn og vinnur úr þeim fyrir stjórnendur. Eigandi getur veitt ExOS lesaðgang að vaktaplani, starfsmannaskrá og tímaskráningum með API-lykli og afturkallað hann hvenær sem er. Launataxtar, netföng og kennitölur fylgja aldrei með.
Skoða ExOSExOS er í lokaðri beta.
Lög og réttindi
Stuttar greinar um reglurnar sem Vaktaplan fylgist með fyrir þig.
Vaktaplan er íslenskt vaktaskipulags- og tímaskráningarkerfi hannað sérstaklega fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, veitingastaði og verslanir. Það kemur í staðinn fyrir flókin Excel skjöl og einfaldar mönnun, vaktaskipti og samskipti við starfsfólk.
Starfsfólk stimplar sig inn og út á snjallsímanum sínum þegar það mætir á vakt. Kerfið notar staðsetningu (GPS) til að staðfesta að viðkomandi sé á vinnustaðnum. Stjórnandi fær svo nákvæmt yfirlit yfir unna tíma og getur sótt þá í skrá fyrir launakerfið.
Já. Stjórnendur setja upp vaktaplan á vefnum okkar og birta það með einum smelli. Starfsfólk fær þá tilkynningu í símann sinn, getur skoðað sínar vaktir, séð hverjir eru með þeim á vakt og óskað eftir vaktaskiptum.
Vaktaplan býr til skrá með tímum (Excel/CSV), flokkaða í dagvinnu, kvöld, helgar, stórhátíðir og yfirvinnu, sem þú lest inn í launakerfið þitt. Hafðu samband ef þú vilt aðstoð við að setja innlesturinn upp.
Nei, það er enginn binditími og fyrstu 30 dagarnir eru ókeypis.
Um það bil 2 mínútur. Þú getur dregið Excel starfsmannalistann beint inn í kerfið.