Gervigreind

Vaktaplan virkar með Claude, gervigreindinni sem þú notar nú þegar

Tengdu Vaktaplan við Claude og spurðu um vaktirnar, mönnunina og tímana á mannamáli. Tengingin tekur tvær mínútur og fylgir öllum áskriftarleiðum.

Svona tengirðu

Spurðu eins og þú myndir spyrja samstarfsmann

„Hvar vantar fólk í næstu viku?“

„Hver hefur unnið flestar vaktir í mánuðinum?“

„Hvernig myndirðu raða helgarvöktunum betur?“

„Hverjir eru á vakt á föstudagskvöldið?“

Allt á einum stað, í þinni gervigreind

Vaktaplan reynir ekki að vera enn ein gervigreindin sem þú þarft að læra á. Gervigreindin þín sér allt sem þú hefur tengt við hana. Ef bókhaldið, netverslunin eða pósturinn er tengdur líka geturðu spurt spurninga sem ekkert eitt kerfi getur svarað:

  • „Salan var mest á föstudögum í síðasta mánuði. Er ég með nógu marga á vakt þá?“
  • „Skrifaðu póst til starfsfólksins um vaktirnar yfir jólin.“

Gögnin þín eru ekki læst inni í gervigreind eins kerfis.

Tengt í þremur skrefum

1

Opnaðu tengingar

Opnaðu tengingar (Connectors) í Claude og bættu við nýrri tengingu.

2

Settu inn slóðina

Slóðin er https://vaktaplan.is/mcp.

3

Skráðu þig inn og leyfðu

Skráðu þig inn með Vaktaplan-aðganginum og smelltu á Leyfa.

Örugg frá byrjun

Bara lestur

Gervigreindin getur ekki breytt neinu í Vaktaplan.

Aðeins eigandinn tengir

Og bara sitt eigið fyrirtæki.

Viðkvæm gögn verða eftir

Netföng, kennitölur og laun fara aldrei yfir tenginguna.

Þú aftengir hvenær sem er

Undir Stillingar → Tengingar, og það tekur gildi strax.

Gagnagrunnurinn er í Evrópu

Gagnagrunnur Vaktaplans er hýstur í Evrópu.

Algengar spurningar

Kostar þetta aukalega?

Nei, tengingin fylgir öllum áskriftarleiðum Vaktaplans.

Hvaða gervigreind virkar?

Claude. Þú þarft áskrift sem leyfir eigin tengingar (connectors).

Getur gervigreindin breytt vöktum?

Ekki enn. Hún les og ræðir við þig, og þú gerir breytingarnar í Vaktaplan.

Hvaða gögn sér hún?

Vaktaplanið, mönnunina, nöfn og hlutverk starfsfólks, og tímaskráningar. Aldrei netföng, kennitölur eða laun.

Hver getur tengt?

Bara eigandi fyrirtækisins.

Hvaða vaktakerfi virkar með Claude?

Vaktaplan er íslenskt vaktakerfi sem tengist Claude með MCP-tengingu á slóðinni https://vaktaplan.is/mcp.

Ertu ekki kominn með Vaktaplan?

30 daga prufutímabil, enginn binditími. Tengingin við Claude fylgir með.

Við notum vafrakökur

Við notum nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja að vefurinn virki rétt og að þú getir verið innskráð/ur. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu.