Starfsfólk stimplar sig inn og út í símanum sínum, þú sérð hverjir eru á vakt og sækir samþykkta tíma beint fyrir launakerfið.
Starfsfólk opnar Vaktaplan í vafranum á eigin síma og stimplar sig inn og út. Ekkert app að sækja og enginn búnaður að kaupa.
Kveiktu á GPS-kröfu og þá getur starfsmaður aðeins stimplað sig inn innan vinnusvæðisins. Slökkt sjálfgefið.
Stjórnandi sér hverjir eru stimplaðir inn núna og hve lengi, og samþykkir tímana áður en þeir fara í laun.
Í lok tímabils sækirðu CSV-skrá með samþykktum tímum og lest hana inn í launakerfið sem þú notar nú þegar.
Frá 2023 kveður 57. gr. a laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum á um að atvinnurekendur haldi hlutlægt, áreiðanlegt og aðgengilegt kerfi um vinnutíma starfsfólks. Þar á meðal annars að koma fram daglegur og vikulegur vinnutími, á hvaða tíma sólarhrings er unnið, samfelldur hvíldartími og vikulegur frídagur. Starfsfólk á að geta nálgast upplýsingarnar 12 mánuði aftur í tímann.
Stimpilklukka skráir nákvæmlega hvenær hver mætti og fór. Með fullu Vaktaplani færðu líka viðvörun í vaktaplaninu áður en hvíldartími milli vakta fer undir 11 klukkustundir.
Lögin krefjast ekki stimpilklukku sem slíkrar. Samkvæmt 57. gr. a laga nr. 46/1980 eiga atvinnurekendur að halda hlutlægt, áreiðanlegt og aðgengilegt kerfi um vinnutíma starfsfólks, meðal annars daglegan og vikulegan vinnutíma, hvenær sólarhrings er unnið og hvíldartíma. Ef vinnutími er reglubundinn nægir að hann komi fram í ráðningarsamningi og frávik séu skráð. Stimpilklukka er algengasta leiðin til að halda slíka skráningu.
Nei. Stimpilklukkan keyrir í vafranum á símanum, bæði iPhone og Android. Hægt er að setja hana á heimaskjáinn svo hún opnist eins og app.
Síminn biður um staðsetningu þegar stimplað er inn. Ef þú kveikir á GPS-kröfu í stillingum getur starfsmaður aðeins stimplað sig inn innan vinnusvæðisins. Annars er stimplunin skráð þótt staðsetning sé utan svæðis.
Stök tímaskráning kostar 2.990 kr. á mánuði án VSK fyrir allt að 15 starfsmenn og 5.990 kr. fyrir allt að 60. Fyrstu 30 dagarnir eru ókeypis og enginn binditími.
Frá 2.990 kr. á mánuði án VSK. 30 daga prufutímabil, enginn binditími.