Virkni•Gervigreind

Tengja Claude við Vaktaplan

Með tengingunni getur þú spurt Claude um vaktaplanið, mönnunina, starfsfólkið og tímaskráningarnar á mannamáli. Hún fylgir öllum áskriftarleiðum. Nánar um tenginguna.

Svona tengirðu

Þú þarft að vera eigandi fyrirtækisins í Vaktaplan og með Claude-áskrift sem leyfir eigin tengingar (connectors).

  1. Í Claude (á claude.ai eða í appinu), opnaðu Settings → Connectors og smelltu á Add custom connector.
  2. Nafn: Vaktaplan. Slóð: https://vaktaplan.is/mcp. Láttu sjálfgefnu stillingarnar standa og smelltu á Add og svo Connect.
  3. Gluggi opnast hjá Vaktaplan. Skráðu þig inn ef þú ert ekki þegar innskráð(ur).
  4. Ef þú átt fleiri en eitt fyrirtæki velurðu hvert á að tengja. Smelltu svo á Leyfa.
  5. Þú ferð sjálfkrafa aftur í Claude. Spurðu til dæmis: „Hvernig lítur vaktaplanið út í næstu viku?“

Hvað sér Claude?

  • Yfirlit yfir fyrirtækið: nafn, starfsstöðvar og fjölda starfsmanna.
  • Vaktaplanið á tilteknu tímabili og hvar vantar fólk á vakt.
  • Starfsmannalistann: nöfn, hlutverk og starfsstöðvar.
  • Tímaskráningar: hvenær var stimplað inn og út.

Netföng, kennitölur og laun fara aldrei yfir tenginguna. Claude getur ekki breytt neinu í Vaktaplan. Tengingin þarf að klárast í sama vafra og hún hófst í.

Aftengja

Í Vaktaplan, opnaðu Stillingar → Tengingar. Undir „Claude og ChatGPT“ sérðu tengingarnar og smellir á Aftengja. Það tekur gildi strax.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • „Aðeins eigandi fyrirtækisins getur tengt það“: aðgangurinn þinn er ekki skráður eigandi neins fyrirtækis. Biddu eigandann að tengja.
  • „Þessi tenging var hafin í öðrum vafra“: byrjaðu aftur í Claude og kláraðu í sama vafra.
  • „Þessi beiðni er útrunnin eða ekki til“: beiðnin gildir í tíu mínútur. Byrjaðu aftur í Claude.
  • „Áskrift fyrirtækisins er ekki virk“: fyrirtækið er læst vegna áskriftar. Opnaðu Vaktaplan, þar sérðu hvernig áskriftin er virkjuð aftur.
  • „Vaktaplan gat ekki hafið þessa tengingu“: tengingin var ekki hafin úr Claude. Byrjaðu aftur þar.

Enn í vandræðum? Skrifaðu á hjalp@vaktaplan.is.

Við notum vafrakökur

Við notum nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja að vefurinn virki rétt og að þú getir verið innskráð/ur. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu.