VirkniVaktaplanið

Vaktaplanið

Kjarninn í kerfinu er vaktaplanið sjálft. Hér er yfirlit yfir hvernig þú býrð til, breytir og birtir vaktir á mettíma.

Snjallt Viðmót

Þú þarft ekki að skrifa tímasetningar handvirkt aftur og aftur. Í Vaktaplani eru tvenns konar "kubbar":

  • 1
    Vaktir (Shifts)Til dæmis "Morgunvakt (08-16)". Þú dregur vaktina á daginn sem þú vilt skipuleggja.
  • 2
    StarfsmennÞú dregur starfsmanninn ofan í vaktina til að manna hana.

Afritaðu heilu vikurnar

Fyrsta vikan tekur smá tíma. Önnur vikan tekur enga stund.

Þú getur afritað viku ("Copy Week") og valið hvort þú vilt afrita bara vaktirnar (grindina) eða vaktirnar með starfsmönnum. Þetta sparar gríðarlegan tíma fyrir vaktavinnustaði með fasta rullu.

Birting vakta (Publish)

Þegar þú ert að vinna í planinu er það í drögum (draft). Enginn sér breytingarnar nema þú.

Þegar þú ert klár, smellir þú á "Birta vaktir". Kerfið sendir þá tilkynningar:

SMS / Email
Starfsmenn fá skilaboð um að nýtt vaktaplan sé komið.
Dagatal
Vaktirnar birtast sjálfkrafa í Google/Apple Calendar hjá starfsfólki.

Við notum vafrakökur

Við notum nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja að vefurinn virki rétt og að þú getir verið innskráð/ur. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu.