VirkniRekstur

Kostnaðareftirlit

Stærsti kostnaðarliður flestra fyrirtækja eru laun. Vaktaplan reiknar kostnaðinn í rauntíma svo þú getir tekið ákvarðanir áður en vaktirnar eru unnar, ekki eftir á.

Rauntíma útreikningur

Um leið og þú dregur vakt á mann, reiknar kerfið kostnaðinn.

Hvað er tekið með í reikninginn?

  • Grunnlaun (tímakaup)
  • Orlof (t.d. 10.17%)
  • Launatengd gjöld (tryggingagjald o.fl.)
  • Álag (33%, 45% o.s.frv.)

*Ef launataxta vantar fyrir starfsmann, varar kerfið þig við með gulri viðvörun í toppstikunni.

Markmið (Budget)

Þú getur sett vikulegt markmið (t.d. 1.500.000 kr.).

Sjónræn endurgjöf

Ef þú ferð fram úr markmiðinu breytist ramminn í toppstikunni í rauðan lit. Þetta hjálpar þér að sjá strax ef planið er orðið of dýrt.

Við notum vafrakökur

Við notum nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja að vefurinn virki rétt og að þú getir verið innskráð/ur. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu.