SamanburðurExcel & Google Sheets

Vaktaplan vs. Excel

Excel er frábært tól í bókhald, en hræðilegt vaktakerfi. Hér er ástæðan fyrir því að íslensk fyrirtæki eru að hætta að nota Excel.

Falinn verðmiði á "ókeypis" tóli

Þó að Excel kosti 0 krónur í áskrift, þá er raunkostnaðurinn falinn í tímanum þínum og hættunni á villum.

Tími í skipulagningu
  • ❌ Handvirk afritun á vöktum
  • ❌ Símtöl og SMS til að finna afleysing
  • ❌ Endurtekinn innsláttur í launakerfi
Kostnaður við villur
  • ⚠️ Yfirvinna greidd óvart
  • ⚠️ Gleymdist að skrá veikindi
  • ⚠️ Brot á 11 tíma hvíldarreglu

3 Ástæður til að hætta með Excel

Engar sjálfvirkar reglur

Excel veit ekki hvað "11 tíma hvíld" er. Það veit ekki að 16 ára unglingur má ekki vinna til klukkan 23:00. Vaktaplan varar þig strax við ef þú setur upp ólöglega vakt. Excel leyfir þér að brjóta lög óvart.

Vaktirnar breytast, Excel skjalið ekki

Um leið og þú hefur prentað út Excel skjalið eða sent PDF, þá er það orðið úrelt. Ef Jón skiptir við Gunnu, þarftu að uppfæra skjalið og senda það aftur. Í Vaktaplani eru breytingar sýnilegar öllum strax í appinu.

Handvirkur innsláttur í launakerfi

Í lok mánaðar þarftu að taka Excel skjalið, leggja saman tímana (og vona að formúlan sé rétt), og slá þá handvirkt inn í Payday eða DK. Vaktaplan reiknar tímana fyrir þig og býr til skrá sem passar beint inn í Payday eða DK — þú sækir hana og hleður henni upp.

Samanburður í hnotskurn

EiginleikiVaktaplanExcel
Tímaskráning í appi
Launakerfistenging
Hvíldartímaviðvörun
Starfsmenn sækja um vaktir

Prófaðu að sleppa Excel í 30 daga

Það er ókeypis að prófa Vaktaplan. Ef þér finnst Excel þægilegra eftir 30 daga, þá geturðu bara hætt. Enginn binditími.

Stofna aðgang ókeypis

Við notum vafrakökur

Við notum nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja að vefurinn virki rétt og að þú getir verið innskráð/ur. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu.