VirkniRegluvörður

Regluvörðurinn

Vaktaplan er eina kerfið sem les kennitölur starfsmanna til að reikna út aldur og beita réttum vinnureglum sjálfkrafa.

Vaktaplan sýnir vanmönnun með rauðu og frávik með viðvörunarmerkjum beint í vaktaplaninu
Regluvörðurinn í verki: vanmönnuð kvöldvakt er rauð, frávik fá viðvörunarmerki á vaktina.

11 Tíma Hvíld

Samkvæmt kjarasamningum eiga starfsmenn rétt á 11 tíma samfelldri hvíld á hverjum sólarhring.

Hvernig kerfið varar við

Ef þú setur starfsmann á kvöldvakt (t.d. til 23:00) og svo á morgunvakt (t.d. 08:00) daginn eftir, eru aðeins 9 tímar á milli.

Vaktaplan varar við áður en þú úthlutar vaktinni: þegar þú velur starfsmann sérðu strax hversu mikla hvíld hann fengi. Vaktir sem brjóta regluna fá viðvörunarmerki í vaktaplaninu og fullar upplýsingar birtast þegar músin er yfir.

Frítökuréttur — það sem brotin kosta

Fáir stjórnendur vita að skert hvíld er ekki bara reglubrot — hún er beinn launakostnaður. Samkvæmt kjarasamningum myndast frítökuréttur þegar starfsmaður mætir til vinnu áður en 11 tíma hvíld er náð: 1,5 klukkustund í launuðu fríi fyrir hverja klukkustund sem hvíldin skerðist, og hann á að koma fram á launaseðli.

Dæmi

Starfsmaður klárar kvöldvakt kl. 23:00 og mætir aftur kl. 08:00 — 9 tíma hvíld í stað 11. Hvíldin skertist um 2 tíma, svo starfsmaðurinn safnar 3 klst. í frítökurétt. Gerist þetta vikulega hjá nokkrum starfsmönnum safnast heilir frídagar á launaskrána — án þess að nokkur taki eftir því.

Vaktaplan reiknar frítökuréttinn sjálfkrafa: viðvörunin sýnir kostnaðinn um leið og vaktin er sett inn, og uppsafnaður frítökuréttur hvers starfsmanns birtist í Tímaafstemmingu fyrir launavinnslu.

Vikuhvíld, 48 tíma hámark og fyrirvari

Regluvörðurinn vaktar fleiri ákvæði vinnutímalöggjafarinnar á meðan þú raðar:

Vikuhvíld

Starfsmaður á rétt á 35 klst. samfelldri hvíld í hverri viku. Kerfið flaggar þegar vika er skipulögð án hennar.

48 tíma hámark

Vinnuvika má ekki fara yfir 48 klst. að meðaltali. Kerfið gefur snemmviðvörun þegar vika fer yfir mörkin.

Fyrirvari & hlé

Við birtingu sérðu fyrirvara vaktskrárinnar og áminningu um 15 mín. hléréttinn á vöktum yfir 6 klst.

Reglur um ungt fólk

Vinnueftirlitið er með mjög skýrar (og flóknar) reglur um vinnutíma barna og ungmenna. Vaktaplan kann þær utanbókar.

Börn (13-15 ára)
  • ❌ Mega ekki vinna eftir 20:00 (skólatími)
  • ❌ Mega ekki vinna meira en 2 tíma á skóladögum
  • ❌ Mega ekki vinna meira en 7 tíma á frídögum
Ungmenni (16-17 ára)
  • ❌ Mega ekki vinna eftir 22:00 (nema undantekningar)
  • ❌ Mega ekki vinna meira en 8 tíma á dag

*Kerfið reiknar aldur sjálfkrafa út frá kennitölu. Þegar starfsmaður verður 18 ára, hverfa takmarkanirnar sjálfkrafa.

Við notum vafrakökur

Við notum nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja að vefurinn virki rétt og að þú getir verið innskráð/ur. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu.