SamanburðurSling, When I Work & Deputy

Vaktaplan vs. Erlend kerfi

Sling og When I Work eru frábær kerfi — í Bandaríkjunum. Á Íslandi vantar þau lykilvirkni sem sparar þér mestan tíma: Tengingu við launakerfi og skilning á íslenskum lögum.

Hvað vantar í "Global" kerfin?

Þessi kerfi eru byggð fyrir "gig economy" vinnumarkaðinn í USA. Þau skilja ekki kjarasamninga VR, Eflingar eða íslenska löggjöf.

Engin sjálfvirk hvíldartímavernd

Sling lætur þig ekki vita ef starfsmaður fær ekki 11 tíma hvíld milli vakta. Vaktaplan varar þig við strax.

Engin tenging við Payday/DK

Þú getur ekki sent tímafærslur úr Sling beint í íslensk launakerfi. Þú þarft að handskrá allt.

3 Ástæður til að velja íslenskt

Ungmenna regluvörður

Vaktaplan þekkir reglurnar um vinnu ungmenna.
"Jón er 15 ára, má hann vinna til 23:00?"
Erlend kerfi segja "Já". Vaktaplan segir "NEI - 15 ára mega ekki vinna eftir 22:00 (eða 20:00 á skólatíma)." Þetta verndar þig gegn sektum og brotum.

Samþætting við launakerfi

Meginmarkmið vaktakerfis er að búa til réttan launagrunn. Vaktaplan talar beint við Payday, DK og Reglu. Þú samþykkir vaktirnar í Vaktaplani og smellir á "Senda í launakerfi". Búið. Engin Excel skjöl á milli.

kr

Verðlagning

Sling og When I Work rukka oftast per notanda. Ef þú ert með 30 starfsmenn í 20% starfi, borgarðu fullt verð fyrir þá alla. Vaktaplan býður upp á fast verð fyrir fyrirtæki. Þú átt ekki að gjalda fyrir að vera með marga starfsmenn á skrá.

Sparaðu þér sporin

Margir viðskiptavinir okkar byrjuðu í Sling en skiptu yfir í Vaktaplan þegar þeir sáu hversu mikil handavinna fór í launagerð.

Prófa Vaktaplan

Við notum vafrakökur

Við notum nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja að vefurinn virki rétt og að þú getir verið innskráð/ur. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu.