VirkniGrunnuppsetning

Koma sér af stað

Það tekur innan við 5 mínútur að setja upp nýtt fyrirtæki í Vaktaplani. Hér eru þrjú grunnatriði sem þarf að skilgreina.

1. Hlutverk (Roles)

Hlutverk skilgreina hvað fólk starfar við. Þetta er notað til að sía vaktir og reikna laun.

Dæmi um hlutverk:

  • Afgreiðsla
  • Vaktstjóri
  • Lager

2. Staðsetningar (Locations)

Staðsetningar skilgreina hvar fólk vinnur. Þú getur haft eina staðsetningu eða margar.

*Ef þú ert með margar verslanir eða deildir, býrðu til nýja staðsetningu fyrir hverja og eina.

3. Bjóða starfsfólki

Þú þarft bara tvennt til að bjóða starfsmanni: Nafn og Símanúmer.

Hvernig virkar boðið?

  1. Þú skráir starfsmanninn í kerfið.
  2. Starfsmaður fær SMS með hlekk.
  3. Viðkomandi smellir á hlekkinn, skráir sig inn með rafrænum skilríkjum (eða netfangi), og er kominn inn!

Við notum vafrakökur

Við notum nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja að vefurinn virki rétt og að þú getir verið innskráð/ur. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu.